Miðjumaðurinn Dele Alli átti mjög góðan leik þegar Tottenham sannfærandi sigur á Wolfsberger frá Austurríki í Evrópudeildinni.
Leikurinn endaði 4-0, mjög sanngjarn sigur og er Tottenham komið áfram í 16-liða úrslitin. Á morgun klárast 32-liða úrslitin í þessari keppni.
Leikurinn endaði 4-0, mjög sanngjarn sigur og er Tottenham komið áfram í 16-liða úrslitin. Á morgun klárast 32-liða úrslitin í þessari keppni.
Alli hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Tottenham á tímabilinu en hann átti mjög flottan leik í kvöld. Hann fékk hvorki meira né minna en tíu í einkunn hjá vefmiðlinum football.london. Hann átti fullkominn leik að mati vefmiðilsins þar sem hann skoraði eitt og lagði upp tvö.
Markið hans var líka mjög fallegt en hann skoraði með hjólhestaspyrnu. Markið má sjá hérna.
Alli hefur aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en það er spurning hvort hann fái fleiri tækifæri eftir þessa flottu frammistöðu.
Athugasemdir