Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 24. febrúar 2021 13:45
Magnús Már Einarsson
Partey gæti snúið aftur á morgun
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Thomas Partey gæti snúið aftur í lið Arsenal í leiknum gegn Benfica í Evrópudeildinni á morgun. Staðan eftir fyrri leik liðanna er 1-1.

„Thomas er mjög nálægt (endurkomu)," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, á fréttamannafundi í morgun.

„Hann fer í lokapprufu á æfingu í dag. Ef honum líður vel þá getur hann spilað leikinn."

Partey meiddist aftan í læri gegn Aston Villa í byrjun mánaðarins og hefur verið frá keppni síðan þá.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Partey síðan hann kom til Arsenal frá Atletico Madrid í fyrrasumar
Athugasemdir
banner
banner