Fotbolti.net
24.02.26 - 08:55
Elvar Geir Magnússon

Leik Íslands í Mexíkó líklega aflýst

Lögreglan í Mexíkó að störfum á fótboltaleik.

Lögreglan í Mexíkó að störfum á fótboltaleik.

Canon

Mynd: EPA

Fjölmiðlar greina frá því að líklegast sé að vináttuandsleik Mexíkó og Íslands sem á að fara fram aðfaranótt fimmtudags verði aflýst af öryggisástæðum.

Greint er frá þessu á mbl.is og vitnað þar í vefsíðuna Daily Sports þar sem sagt er að ef ekki verði hægt að tryggja öryggi allra verði leiknum aflýst.
Ágúst Orri: Smá sjokk þegar maður heyrði fyrst af þessu
TENGT EFNI

Ágúst Orri: Smá sjokk þegar maður heyrði fyrst af þessu

Óeirðir hafa verið víða í Mexíkó síðustu daga eftir að Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við lögreglu. Hann var yfirmaður Jalisco-glæpagengisins.

Íslenska landsliðið, sem er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni þar sem leikið er utan glugga, er nú við æfingar í Queretaro í Mexíkó þar sem leikurinn á að fara fram.

Mörgum leikjum í mexíkósku deildinni var frestað um helgina vegna ástandsins í landinu og mikil umræða skapast um öryggismál í aðdraganda HM í sumar; sem á að fara fram í Mexíkó auk Kanada og Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.