Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. maí 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndir: Guy Smit lét Helga heyra það og ýtti svo við Hauki Páli
Guy í leiknum á sunnudag.
Guy í leiknum á sunnudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ari sendir á Helga Guðjóns sem tekur boltann með sér framhjá Guy Smit og hendir sér í grasið. Helgi uppsker gult fyrir dýfu!" skrifaði Ingi Snær Karlsson sem textalýsti leik Vals og Víkings á sunnudagskvöld.

Víkingurinn Ari Sigurpálsson átti sendingu inn á Helga Guðjónsson sem fór framhjá markverði Vals og fór svo í grasið. Atvikið átti sér stað á 63. mínútu og uppskar Helgi gult spjald frá Jóhanni Inga Jónssyni sem dæmdi leikinn.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  3 Víkingur R.

„Guy fær líka spjald því hann keyrir í Helga eftir dýfuna. Mjög heimskulegt," skrifaði svo Ingi í kjölfarið.

Á myndum sem Hafliði Breiðfjörð náði að atvikinu má sjá að Guy ýtir í fyrirliða sinn Hauk Pál Sigurðsson sem kom að atvikinu. Guy var augljóslega ekki sáttur við að Helgi var að reyna krækja í vítaspyrnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner