Tveir áhugaverðir leikmenn hafa á síðustu dögum fengið félagaskipti í lið í 4. deildinni, KH og KFK hafa fengið öflugan liðsstyrk fyrir tímabilið í sumar.
Markvörðurinn Andri Þór Grétarsson hefur fengið félagaskipti frá Kórdrengjum í KFK. Andri er 24 ára og hefur ekkert spilað síðan hann meiddist illa í upphafi móts 2021. Hann er uppalinn í HK en hefur einnig spilað með Aftureldingu og Kórdrengjum á sínum ferli.

Þá hefur Kári Daníel Alexandersson fengið félagaskipti frá Val í KH. Kári Daníel er fyrrum unglingalandsliðsmaður sem meiddist illa á hálsi í nóvember 2021 og hefur ekki spilað síðan.
Hann er nítján ára gamall og er uppalinn Valsari. Hann lék með Njarðvík á láni tímabilið 2020 og Gróttu tímabilið 2021.
KH og KFK eru bæði með þrjú stig eftir tvo leiki í 4. deild.
Sjá einnig:
Kári Daníel: Læknirinn sagði að ég hafi verið stálheppinn að lamast ekki
Andri Þór sleit hásin - „Besti keeperinn í deildinni"
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir