Fotbolti.net
24.05.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Celtic tvöfaldur meistari

Celtic tvöfaldur meistari
Canon

Mynd: EPA

Celtic 3 - 1 Dunfermline Athletic
1-0 Daizen Maeda ('19)
2-0 Arne Engels ('36)
3-0 Kelechi Iheanacho ('73)
3-1 Josh Cooper ('80)
Celtic tókst að snúa því sem virtist ætla að verða mikið vonbrigðatímabil við þökk sé frábærum árangri undir stjórn 74 ára gamals Martin O'Neill sem efast um að hafa orkuna til að stýra liðinu áfram á næstu leiktíð.

74 ára O'Neill ekki viss um að hann hafi orku til að stýra Celtic áfram
TENGT EFNI

74 ára O'Neill ekki viss um að hann hafi orku til að stýra Celtic áfram



O'Neill, sem gerði frábæra hluti við stjórnvölinn hjá Celtic frá 2000 til 2005, tók aftur við stjórn á liðinu í október í fyrra eftir að Brendan Rodgers sagði starfinu lausu til að taka við í Sádi-Arabíu fyrir talsvert hærri launapakka. O'Neill var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari og gekk liðinu vel undir hans stjórn, en svo var Wilfried Nancy ráðinn í þjálfarastarfið. Sú ráðning gekk ekki upp og var Nancy rekinn 33 dögum eftir að hafa verið ráðinn. O'Neill var þá kallaður aftur til að taka við liðinu.

Hann tók við Celtic þegar liðið var sex stigum frá toppnum og endaði á að vinna deildina í lokaumferðinni eftir afar dramatískar lokamínútur gegn liðsfélögum Tómasar Bents Magnússonar í Hearts.

Celtic skoskur meistari eftir dramatískar lokamínútur
TENGT EFNI

Celtic skoskur meistari eftir dramatískar lokamínútur



Í gær tryggði liðið sér sigur í úrslitaleik skoska bikarsins og tókst O'Neill því að vinna tvöfalt í Skotlandi, bæði deild og bikar.

Daizen Maeda kom Celtic yfir með laglegri vippu í fyrri hálfleik áður en Arne Engels tvöfaldaði forystuna með þrumuskoti utan af velli svo staðan var 2-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik innsiglaði Kelechi Iheanacho sigurinn eftir frábært einstaklingsframtak áður en Josh Cooper minnkaði muninn á 80. mínútu, en lokatölur urðu 3-1.

Þægilegur sigur fyrir Celtic sem hefur unnið bikarinn þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum.
Celtic tvöfaldur meistari
Canon

Mynd: EPA

Celtic tvöfaldur meistari
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.