Fotbolti.net
18.05.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

74 ára O'Neill ekki viss um að hann hafi orku til að stýra Celtic áfram

74 ára O'Neill ekki viss um að hann hafi orku til að stýra Celtic áfram
Canon

Mynd: EPA

Martin O'Neill ætlar ekki að ræða um framtíð sína fyrr en eftir bikarúrslitaleik Celtic gegn Dunfermline á laugardag.

O'Neill er 74 ára og hefur tvisvar stokkið inn sem bráðabirgðastjóri á þessu tímabili; eftir að Brendan Rodgers og svo Wilfried Nancy yfirgáfu félagið.
Celtic skoskur meistari eftir dramatískar lokamínútur
TENGT EFNI

Celtic skoskur meistari eftir dramatískar lokamínútur

Celtic var sex stigum á eftir Hearts þegar O'Neill tók við liðinu í seinna skiptið á tímabilinu en endaði sem Skotlandsmeistari eftir að hafa unnið Hearts í hreinum úrslitaleik um titilinn um liðna helgi.

„Það er stór úrslitaleikur framundan og ég býst ekki við að við ræðum neitt fyrr en eftir þennan leik. Í hreinskilni sagt þá er ég ekki viss um að ég hafi þá orku sem þarf til að halda áfram," segir O'Neill.

„En hver veit? Ég hef klárlega fundið orku með því að vinna með ungu fólki á æfingasvæðinu á hverjum degi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.