Celtic er skoskur meistari í 56. sinn í sögunni eftir að hafa unnið Hearts, 3-1, í dramatískum úrslitaleik í lokaumferð deildarinnar á Celtic Park í dag.
Tómas Bent Magnússon og félagar í Hearts voru ótrúlega nálægt því magnaða afreki að vinna titilinn.
Ekkert lið utan Celtic og Rangers hafði unnið titilinn síðan Aberdeen gerði það tímabilið 1984-1985.
Hearts þurfti aðeins stig gegn Celtic til að tryggja sér titilinn. Lawrence Shankland gerði stuðningsmenn vongóða er hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu á 43. mínútu, en Arne Engels jafnaði af vítapunktinum rétt áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.
Tveimur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma setti Daizen Maeda boltann í netið, en aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu. Eftir skoðun VAR kom í ljós að leikmaðurinn sem fékk sendinguna var ekki rangstæður áður en hann kom boltanum á Maeda sem skoraði.
Uppbótartímann var átta mínútur og þegar lítið var eftir af honum bættu heimamenn við þriðja markinu til að gulltryggja 56. titil félagsins og þann fimmta í röð.
Hearts kastaði öllum leikmönnum fram völlinn í aukaspyrnu, en töpuðu síðan boltanum. Þrír leikmenn Celtic keyrðu fram völlinn og var það Callum Osmand sem setti boltann í autt markið og fagnaði innilega með stuðningsmönnum sem stóðu fyrir aftan markið.
Tómas Bent var ekki með Hearts í dag vegna meiðsla, en hann átti frábært tímabil með liðinu og hafði unnið sér inn stórt hlutverk í liðinu.
Hólmbert Aron Friðjónsson byrjaði í 4-0 tapi Gwangju gegn Incheon í suður-kóresku úrvalsdeildinni. Gwangju hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu og tapað tíu ásamt því að gera fjögur jafntefli.
Gwangju er á botninum með 7 stig.
Lúkas Petersson var í marki varaliðs Hoffenheim sem tapaði fyrir Wehen, 2-0, í þýsku C-deildinni. Hoffenheim hafnaði í 16. sæti deildarinnar með 43 stig, átta stigum fyrir ofan fallsæti.
CHAMPIONS AGAIN!
— Celtic Football Club (@CelticFC) May 16, 2026
???? Celtic are crowned Champions of Scotland for the FIFTH season in a row!
Huge congratulations to Martin O’Neill and the Bhoys
#Champion5 | #CelticFC???????? pic.twitter.com/IoZTsGuvLH


