Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 24. júní 2020 22:55
Ester Ósk Árnadóttir
Nökkvi: Skrítið að spila tveimur mönnum fleiri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við byrjuðum vel, komumst snemma yfir og mér fannst við hafa tök á leiknum," sagði Nökkvi Þeyr besti maður vallarins eftir leik KA og Leiknis á Greifavellinum í dag.

Lestu um leikinn: KA 6 -  0 Leiknir R.

Sólon Breki Leifsson og Brynjar Hlöðversson í liði Leiknis voru reknir af velli eftir 30 mínútna leik.

„Þeir missa tvo menn út af sem að breyti svolítið leiknum. Það var svolítið skrítið að spila hann tveimur mönnum fleiri."

KA skoraði 6 mörk í leiknum.

„Maður má ekki gleyma sér þegar leikurinn er svona af því að þótt þeir séu tveimur mönnum færri, geta þeir alveg skorað og við misst þetta. Við höndluðum þetta nokkuð vel, vorum rólegir. Héldum boltanum og vorum að reyna að finna svæðin."

Nökkvi skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar.

„Ég er allur að koma til. Mér leið vel í dag. Ég náði að setja inn tvö mörk og hefði átt að setja þriðja en það var þúfa á vellinum, kennum því um en já ég er í toppformi."

KA á útileik gegn Stjörnunni í næsta leik.

„Stjarnan er mjög gott lið og við þurfum að hafa okkur alla við til að vinna. Þetta er bara verkefni sem ég hlakka til að takast á við og vonandi tökum við þrjú stig. Við förum í alla leiki til að vinna."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner