Ingvar Jóns: Erum aðeins að bjóða hættunni heim en erum þéttir til baka

Ingvar Jónsson

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ingvar Jónsson

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Gríðarlega sáttur, geggjað að halda hreinu aftur en það er orðið svolítið síðan. Tókum marga í röð þarna í byrjun og það er alltaf mjög sætt að halda hreinu." sagði Ingvar Jónsson markvörður Víkinga en Ingvar átti góðan leik í marki Víkings í kvöld.
„Leikurinn var svolítið kaflaskiptur. Við vorum í vandræðum með Stjörnumenn stóran kafla í fyrri hálfleik en svo tókst okkur að halda aðeins betur í hann og þá hlupu þeir og þreyttust en þeir fengu alveg sín færi og þá hefði þetta orðið svolítið öðruvísi leikur en það var mjög þægilegt að hafa þessi tvö mörk í forskot."
Ingvar Jónsson átti nokkrar mjög góðar markvörslur í kvöld og var hann spurður út í frammistöðu sína í kvöld.
„Þetta gékk mjög vel í kvöld, ég átti þrjár - fjórar fínar. Undirbúningurinn skilar sér, ég er búin að horfa á fullt af videoum í dag af Hilmari Árna og hvernig hann er að slútta og svona smáatriði hjálpa."
„Við ætlum ekkert að slaka á en slökum ásjálfrátt á og erum aðeins að bjóða hættunni heim en við erum þéttir til baka og mér leið einhverneigin aldrei ílla en við höfum fengið það í bakið áður eins og gerðist um daginn en við höfum líka oft haldið hreinu í sumar þannig við erum öflugir í vörninni."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.



