Fotbolti.net
24.07.13 - 07:30
Arnar Daði Arnarsson

Andri og Guðjón í Gróttu (Staðfest)

Andri fagnar í leik með Þrótti.

Andri fagnar í leik með Þrótti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Framherjinn Andri Gíslason og varnarmaðurinn Guðjón Gunnarsson hafa gengið til liðs við 2.deildarlið Gróttu. Báðir koma þeir frá Þrótti en þeir yfirgáfu herbúðir Þróttar í síðustu viku.

Þeir fara því sömu leið og Erlingur Jack Guðmundsson sem gekk til liðs við Gróttu í síðustu viku.
Andri kemur til Gróttu á láni frá uppeldisfélagi sínu FH. Andri hefur leikið með Þrótti undanfarin tvö sumur og skorað 9 mörk í 35 leikjum fyrir félagið.

Þetta er kærkominn viðbót fyrir Gróttu því Pétur Theodór framherji Gróttu sleit krossband í hné fyrir skömmu og Jónmundur Grétarsson annar framherji liðsins snýr aftur til Ameríku um miðjan ágúst.

Guðjón er öllu leikreyndari en Andri, hann á að baki 108 meistaraflokksleiki. Síðustu ár hefur hann spilað með ÍR en hann gekk til liðs við Þróttar fyrir tímabilið og spilaði átta leiki með þeim í sumar.

Þetta er tvímælalaust mikill liðstyrkur fyrir Gróttu að landa þessum tveimur leikmönnum sem hafa reynslu úr efri deildum. Grótta er sjö stigum á eftir topp sætunum tveimur í 2.deildinni og þeir ætla sér greinilega meiri hluti á seinni hluta tímabilsins.

Heimild: Heimasíða Gróttu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.