Fotbolti.net
24.07.13 - 19:50
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Higuain og Reina komnir til Napoli (Staðfest)

Higuain og Reina komnir til Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gonzalo Higuain og Pepe Reina stóðust læknisskoðun hjá Napoli og verða kynntir opinberlega sem nýir leikmenn félagsins næsta mánudag, samkvæmt forseta Napoli Aurelio De Laurentiis.

Higuain kemur frá Real Madrid fyrir 40 milljónir evra, eða rúmlega 34 milljónir punda, á meðan Reina verður á lánssamning út tímabilið.
De Laurentiis birti þetta á opinberum Twitter aðgangi sínum og því þarf mikið að gerast til að félagsskiptin gangi ekki í gegn.

,,Higuain og Reina stóðust læknisskoðun og munu hefja æfingar með rest liðsins á næstu dögum,\" skrifaði De Laurentiis á Twitter.

,,Á mánudaginn verður stór veisla á San Paolo (leikvangur Napoli).

,,Þá getur fólk kynnst nýju leikmönnunum og séð treyjurnar sem þeir munu spila í.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.