Fotbolti.net
24.07.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Julio Baptista til Cruzeiro (Staðfest)

Julio Baptista til Cruzeiro (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Julio Baptista hefur gengið til liðs við Cruzeiro í heimalandi sínu Brasilíu.

Baptista hefur leikið með Malaga í tvö og hálft ár en hann hefur nú losnað undan samningi þar til að ganga í raðir Cruzeiro.
Hinn 31 árs gamli Baptista hefur verið að glíma við meiðsli undanfarin ár en hann var frá keppni í meira en heilt ár áður en hann snéri aftur í lið Malaga síðastliðið vor.

Baptista hefur leikið lengi í Evrópu en hann var áður á mála hjá Sevilla, Real Madrid og Arsenal.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.