Fotbolti.net
24.07.13 - 08:30
Daníel Freyr Jónsson

QPR keypti Karl Henry frá Wolves (Staðfest)

Karl Henry.

Karl Henry.

Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur fengið til sín miðjumanninn Karl Henry frá Wolves fyrir eina milljón punda.

Þessi þrítugi Englendingur skrifaði undir tveggja ára samning á Loftus Road og er hann þriðju kaup Harry Redknapp, stjóra QPR, í sumar.
Áður höfðu þeir Danny Simpson og Richard Dunne gengið í raðir QPR, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Ljóst er að leikmannamál QPR eru ekki komin á hreint fyrir komandi leiktíð í Championship-deildinni þar sem launakostnaður félagsins þykir allt of mikill fyrir lið í þeirri deild.

Menn eins og Esteban Granero og Joey Barton munu líklega hverfa á brott áður en tímabilið hefst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.