Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. júlí 2021 23:00
Victor Pálsson
„Mbappe þarf að fylgja hjartanu"
Mynd: EPA
Kylian Mbappe þarf að fylgja eigin hjarta að sögn miðjumannsins Georginio Wijnaldum sem kom til Paris Saint-Germain í sumar.

Það er óljóst hvort Mbappe spili mikið lengur með PSG en hann verður samningslaus á næsta ári.

PSG hefur enn ekki náð að framlengja samning leikmannsins sem er talinn vera einn sá besti í heimi.

Wijnaldum kom sjálfur til PSG í sumar en hann kom á frjálsri sölu frá Liverpool.

„Allir vilja sjá Mbappe spila hér áfram og þá fyrst og fremst ég - hann er ein af ástæðunum af hverju ég kom til PSG," sagði Wijnaldum.

„Ég var nú þegar ánægður að sjá framlengingu Neymar. Ég hef verið í þessari stöðu og þú þarft að fylgja hjartanu."

„Ég vona að hann vilji vera hjá PSG því félagið er að gera allt til að verða það besta í heimi."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner