Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 24. júlí 2022 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alli skoraði tvö í fyrsta sigri Everton
Mynd: Getty Images
Það hefur lítið gengið hjá Everton undanfarna mánuði en liðið rétt slapp við fall úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum liðsins á undirbúningstímabilinu í ár, fyrst gegn Arsenal og svo 4-0 gegn Minnesota United þar sem Dele Alli klikkaði m.a. á dauðafæri.

Frank Lampard stjóri liðsins lét menn heyra það í viðtali eftir leikinn.

Liðið lék æfingaleik í dag þegar liðið mætti Blackpool. Vitali Mykolenko og Tom Davies skoruðu sitt markið hvor í fyrri hálfleik og Everton fór með 2-1 forystu í hálfleik.

Alli bætti upp fyrir klúðrið gegn Minnesota og skoraði tvö í síðari hálfleik. Að lokum vann Everton 4-2.


Athugasemdir
banner
banner