Hallgrímur Mar: Einhverjir sem blótuðu mér fyrir að skjóta í fyrsta en þeir þegja núna
Auglýsing

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var fullmikil spenna að mínu mati, Keflavík voru bara góðir og við vorum í basli. Þetta var bara 50-50 leikur sem datt okkar meginn í dag sem betur fer.“ Voru orð Hallgríms Mar Steingrímssonar leikmanns KA eftir 4-3 sigur KA á Keflavík á HS Orkuvellinum í Keflavík í frábærum fótboltaleik fyrr í kvöld. Hallg?imur bætti við um leik KA.
„Við vorum ekki í takti í fyrri hálfleik. Klaufar í móttökum og sendingum og bara ekki nógu fastir fyrir. Við jöfnum gegn gangi leiksins og komumst yfir í næsta horni á eftir rétt fyrir hálfleik sem er auðvitað mjög vont fyrir þá.“
Hallgrímur Mar sem er þekktur sem spyrnumaður góður átti hlut að máli í mörkum KA í dag en hornspyrnur hans voru skeinuhættar og sköpuðu usla í teig Keflavíkur auk þess að skila mörkum.
„Það er erfiðara að skora úr horni en að setja hann fyrir þannig að ég gef kredit á strákanna í boxinu fyrir að klára þetta.“
Auk þess að leggja upp skoraði Hallgrimur glæsilegt mark í leiknum þar sem hann lét vaða í fyrsta á markið og boltinn fór í slánna og inn.
„Það voru einhverjir sem blótuðu mér fyrir að skjóta í fyrsta en þeir þegja núna.“
Allt viðtalið við Hallg?im má sjá í spilaranum hér að ofan.