Fotbolti.net
24.07.23 - 12:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Kópavogsvelli

Höskuldur: Þýðir ekkert að vera að hugsa um einhver öryggisnet

Auglýsing
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Þetta er hrikalega spennandi og skemmtilegt verkefni," segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, í samtali við Fótbolta.net.

Á morgun spilar Breiðablik fyrri leik sinn við FC Kaupmannahöfn, stærsta félag Skandinavíu, í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.
„Það er stórt að mæta stærsta liðinu á Norðurlöndum og við hlökkum til að gefa þeim alvöru rimmu."

Það er mikill áhugi á leiknum og það varð uppselt á Kópavogsvöll á sex mínútum. „Ég held að allur Kópavogur vilji sjá okkur etja kappi á móti svona stóru liði. Þá vilja hlutlausir líka sjá það með eigin augum þegar svona lið mætir íslensku félagsliði, og sjá hvar íslenskur fótbolti stendur á móti þeim bestu í Skandinavíu. Það kemur mér ekkert á óvart," segir Höskuldur um að það sé uppselt á leikinn.

Það er trú í leikmannahópi Breiðabliks að liðið geti strítt stórliðinu frá Kaupmannahöfn.

„Trúin flytur fjöll og hefur gert það fyrir okkur undanfarin ár í Evrópukeppnum. Við mætum með okkar leikstíl og það hefur skilað sér í frábærri frammistöðu og ekki síður í góðum úrslitum á móti stórum liðum. Við nálgumst þetta einvígi eins og hin einvígin; við ætlum að vinna FCK og fara áfram."

„Þetta er stærsta liðið í Skandinavíu og það verður gaman að máta sig við þá," segir Höskuldur.

Bara þetta einvígi sem skiptir máli núna
Eftir sigur Breiðabliks á Shamrock Rovers er ljóst að liðið er einum sigri í einvígi frá riðlakeppni í Evrópu, frá því að verða fyrsta íslenska liðið til að ná þeim áfanga að komast í riðlakeppni.

Það er öruggt að Breiðablik á minnst sex leiki eftir í Evrópu. Tvo á móti FCK og það fer eftir úrslitunum í því einvígi hvernig leiðin áfram liggur.

Í raun má segja að Breiðablik þurfi að vinna eitt einvígi af þremur í viðbót til að komast í riðlakeppni. „Við erum meðvitaðir um það, ég væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað. Að því sögðu þá - eins og Óskar hefur imprað á við okkur - þýðir ekkert að vera að hugsa um einhver öryggisnet. Það er bara þetta einvígi, þessi leikur á morgun. Það er bara þetta einvígi sem skiptir okkur máli núna."

Sjá einnig:
Sjö leiðir Breiðabliks í riðlakeppni Evrópu

Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.
Höskuldur fagnar marki gegn Shamrock Rovers á dögunum.

Höskuldur fagnar marki gegn Shamrock Rovers á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.