24.07.26 - 22:44
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Dagur Eiríks tryggði dýrmæt stig

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Ýmir 1 - 0 KH
1-0 Dagur Eiríksson ('14)
Rautt spjald: Jón Örn Ingólfsson, KH ('92)
1-0 Dagur Eiríksson ('14)
Rautt spjald: Jón Örn Ingólfsson, KH ('92)
Ýmir og KH áttust við í eina leik kvöldsins í 3. deildinni og skoraði Dagur Eiríksson á fjórtándu mínútu til að ná forystunni fyrir heimamenn.
Heimamenn héldu forystunni allt til leiksloka í Kórnum þar sem hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn.
Gestirnir úr Hlíðunum fengu þrjú gul spjöld í venjulegum leiktíma og lét Jón Örn Ingólfsson reka sig af velli með seinna gula spjaldið sitt í uppbótartíma.
Lokatölur urðu 1-0 fyrir Ými og eru þetta afar dýrmæt stig fyrir liðið sem fjarlægist fallbaráttuna. Ýmir er núna með 15 stig eftir 14 umferðir, sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Þetta tap er skellur fyrir KH, sem gat jafnað Tindastól á toppi deildarinnar með sigri.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Tindastóll | 13 | +14 | 28 |
| 2 | Víðir | 13 | +14 | 27 |
| 3 | Reynir S. | 13 | +13 | 26 |
| 4 | KH | 14 | +17 | 25 |
| 5 | KV | 13 | +1 | 24 |
| 6 | KF | 13 | +3 | 20 |
| 7 | Augnablik | 14 | 0 | 18 |
| 8 | Höttur | 13 | -3 | 15 |
| 9 | Ýmir | 14 | -6 | 15 |
| 10 | KÁ | 14 | -17 | 13 |
| 11 | Sindri | 13 | -18 | 8 |
| 12 | Árbær | 13 | -18 | 5 |