Halli: Hittum á Víking á góðum degi hjá þeim

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík fór á Víkingsvöllinn í kvöld og mætti þar toppliði Bestu Deildarinnar Víking R. Leiknum lauk með 5-1 tapi Keflavíkur og því lítið að hafa úr ferða gestana að þessu sinni.
Haraldur Freyr þjálfari Keflavíkur var til taks í viðtal eftir leikinn og hafði meðal annars þetta að segja.
„Fyrst og fremst svekktur með úrslitin og frammistöðuna af einhverju leiti, sérstaklega þá fyrri hálfleikinn. Fannst við vera sloppy, mjög hægir á löppunum og áttum erfitt með að elta þá. Fannst allt annað lið koma út í seinni hálfleik þar sem við byrjum á að skora gott mark. Klárast svolítið leikurinn þegar þetta fer í 3-1, síðan kannski óþarfa mörk þessi tvö sem við gefum eftir það."
„Við hittum líka bara á Víking á góðum degi hjá þeim, þeir eru erfiðir hérna á þeirra velli."
Keflavíkur liðið þurfti að gera þrjár breytingar frá síðasta leik þar sem þeir unnu ÍA 5-2 og því mikil öruggt að segja að mikil sveifla hafi verið á leik liðsins. „Já við þurftum að gera breytingar af ýmsum ástæðum, Eiður er náttúrulega orðinn leikmaður Víkings og mátti ekki spila. Muhamed er í leikbanni síðan misstum við Anton Krajl í meiðsli. Það er samt ekkert sem við þurfum að pæla í þeir eru klárir í næsta leik (Eiður og Muhamed) og það komu góðir leikmenn inná í staðinn og menn fengu tækifæri til að sýna sig. Við þurfum bara að halda áfram.
Eftir að hafa misst Krajl og einnig Davíð Helga báða úr vörninni. Þá er nokkuð gefið Keflavík lýti kannski í kringum sig til að fylla í þau göt sem myndast með brottför þeirra. „Jú að sjálfsögðu, við erum alveg að skoða markaðinn og munum reyna að sækja einhverja styrkingu."
Næsti leikur Keflavíkur er á heimavelli en þá fá þeir KA í heimsókn. „Það er alveg soldið langt í þann leik en það verður hörkuleikur. Við verðum bara aðeins að jafna okkur núna, taka nokkra daga í frí og koma tvíefldir til leiks."





