Fotbolti.net
24.07.26 - 22:52
Viktor Ingi Valgarðsson

Sölvi Geir: Fengu fyrsta startið í langan tíma og skiluðu góðu dagsverki

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víking R.

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víking R.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld fór leikur Víkings og Keflavíkur fram á Víkingsvellinum. Leiknum lauk með 5-1 sigri heimamanna. Leikurinn var hluti af 16.umferð Bestu Deildar karla.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 5 - 1 Keflavík

„Alltaf gaman að sigra, fannst við gera það vel. Spiluðum af mikilli fagmennsku í dag. Virkilega sáttur með innkomu leikmanna, þegar við þurftum að hvíla leikmenn og fá smá kraft í þetta. Þá komu þeir með það. Leikmenn sem hafa ekki verið að spila mikið undanfarið koma inn í byrjunarliðið og gerðu mjög vel, Stígur og Daði fengu fyrsta startið í langan tíma og skiluðu góðu dagsverki. Viktor Örlygur var líka frábær í leiknum fannst mér." 

Víkingsliðið skoraði fimm mörk í dag og öll mörkin fengu sinn eigin markaskorara. „Já, ef það dreifist á þá alla, þá er það flott, en stundum er líka fínt þegar bara einn skorar. Þannig ef liðið sem heild skorar þá er það bara jákvætt."

Innkoma Keflvíkinga í seinni hálfleik var mjög sterk og þeir minnkuðu muninn strax á fyrstu mínútu en það var eiginlega eini kafli leiksins sem Víkingsliðið var ekki nokkuð öruggt. „Það á í raun ekki að breyta okkar nálgun á leikinn, erum meðvitaðir að 2-0 forskot í hálfleik er fljótt að breytast. Það er bara ekki okkar standard að fara slaka á, sama hvernig staðan er í leiknum. Það á ekki að þurfa eitthvað mark til þess að vekja okkur."

Þessi leikur kemur á milli Evrópuleikja hjá Víkings en það var alveg ljóst að einbeiting var á þessum leik hér í kvöld og seinni leikurinn í Evrópu má bíða. „Við þurfum að halda áfram með Íslandsmótið, í draumaheimi fengjum við meiri hvíld á milli þessara leikja en svona er þetta bara, bara enn einn leikurinn og við viljum vera í þessu törn. Viljum vera í Evrópu og spila núna þétt. Þannig það er yfir engu að kvarta."

Víkingur fer með 1-0 forskot til Ungverjalands þar sem þeir munu mæta Hapoel frá Ísrael, spurður í lokinn hvort hann væri vongóður fyrir ferðinni hafði Sölvi Geir Ottesen þetta að segja: „Jájájá, alltaf vongóður, alltaf bjartsýnn. Áttum góðan leik hérna heima á móti þeim og bíst við bara hörkuleik aftur á móti mjög góðu liði í aðstæðum sem þeir þekkja betur heldur en hérna heima. Þurfum að mæta með gott gameplan og vilja spila okkar leik úti, ekki bakka í lágvörn og bíða.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.