Fotbolti.net
24.07.26 - 23:22
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild kvenna: Fylkir á toppinn eftir stórsigur

2. deild kvenna: Fylkir á toppinn eftir stórsigur
Canon

Mynd: Fylkir

Hertz
Fylkir 6 - 0 KÞ
1-0 Sara Rún Antonsdóttir ('6 )
2-0 Karen Dís Vigfúsdóttir ('23 )
3-0 Harpa Karen Antonsdóttir ('27 )
4-0 Birta Margrét Gestsdóttir ('35 )
5-0 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('53 )
6-0 Birta Margrét Gestsdóttir ('55 )
Fylkir er kominn á topp 2. deildar kvenna eftir stórsigur gegn KÞ fyrr í kvöld.

Staðan var 4-0 í hálfleik og urðu lokatölur 6-0. Fylkir er með 26 stig eftir 11 umferðir í afar jafnri toppbaráttu þar sem fjögur stig skilja á milli fimm efstu liðanna og eiga öll liðin í kringum Árbæinga leiki til góða.

Birta Margrét Gestsdóttir var atkvæðamest með tvennu en Sara Rún Antonsdóttir, Karen Dís Vigfúsdóttir, Harpa Karen Antonsdóttir og Hildur Anna Brynjarsdóttir komust einnig á blað.

KÞ er með 13 stig eftir 11 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.