Fotbolti.net
24.07.26 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Como nálgast samkomulag við Chelsea

Como nálgast samkomulag við Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Como, spútnik lið síðustu leiktíðar í ítölsku deildinni sem náði óvænt Meistaradeildarsæti í lokaumferðinni, er enn í viðræðum við Chelsea um kaup á enska landsliðsmanninum Trevoh Chalobah.
Chelsea hafnaði tveimur tilboðum frá Como
TENGT EFNI

Chelsea hafnaði tveimur tilboðum frá Como

Chalobah er 27 ára gamall og hefur spilað 151 leik á fimm árum hjá uppeldisfélaginu Chelsea.

Chelsea vill fá 30 milljónir punda fyrir Chalobah en síðasta tilboð Como er talið hafa hljóðað upp á rúmar 25 milljónir.

Viðræðum félaganna miðar þó vel og eru taldir góðir möguleikar á að samkomulag náist á næstu dögum.

Chalobah er spenntur fyrir ítalska boltanum eftir að hafa verið meðal mínútuhæstu leikmanna Chelsea á síðustu leiktíð.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.