Fotbolti.net
24.07.26 - 22:35
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Leipzig hafnaði risatilboði frá Real Madrid

Leipzig hafnaði risatilboði frá Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Kantmaðurinn efnilegi Yan Diomande er gríðarlega eftirsóttur af stórveldum um alla Evrópu en hann á fjögur ár eftir af samningi sínum við RB Leipzig.
Orð Diomande stangast á við yfirlýsingu Leipzig - „Auðvitað býst ég við því að fara“
TENGT EFNI

Orð Diomande stangast á við yfirlýsingu Leipzig - „Auðvitað býst ég við því að fara“

Paris Saint-Germain og Liverpool eru sérstaklega áhugasöm um Diomande og hafnaði Leipzig risatilboði frá Liverpool fyrr í sumar.

Tilboðið frá Liverpool er talið hafa hljóðað upp á 100 milljónir evra og greinir Sky í Þýskalandi frá því að Real Madrid lagði fram samskonar tilboð á dögunum, en Leipzig hafnaði því jafnóðum.

Tilboð Real Madrid hljóðaði upp á 90 milljónir evra, auk 10 milljóna í árangurstengdar aukagreiðslur.

Diomande vill helst fara til PSG en Evrópumeistararnir eiga eftir að ná samkomulagi við Leipzig um kaupverð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.