Guðni Þór: Barist til síðustu sekúndu í þessari deild
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var frábær frammistaða í dag í blíðunni í Kórnum. Ég er bara gríðarlega ánægður. Við náðum að halda hreinu og skorum fimm frábær mörk svo ég gæti ekki verið sáttari,“ sagði Guðni Þór Einarsson, þjálfari HK, eftir 5-0 sigur á Grindavík í Lengjudeild kvenna.
„Það var jafnræði fyrstu mínúturnar. Grindavíkurliðið er gott. Þær eru með góða leikmenn og hafa verið að ná góðum úrslitum,“ sagði Guðni um leikinn en undir lok fyrri hálfleiks stal Brookelynn Entz senunni. Sýndi frábæra takta og skoraði tvö mörk sem kom HK í lykilstöðu. Aðspurður sagði Guðni að Brookelynn væri besti leikmaður deildarinnar.
„Hún er stórkostlegur leikmaður. Hún tók smá Messi takta í markinu sínu,“ sagði Guðni um Brookelyn og staðfesti að ekki hafi verið um alvarleg meiðsli að ræða en leikmaðurinn öflugi þurfti að fara af velli vegna meiðsla í síðari hálfleik.
Toppbarátta Lengjudeildarinnar í sumar er gríðarlega spennandi og HK eygir enn von um að komast upp um deild. Liðið er þó aðeins 3 stigum á undan Fylki sem á tvo leiki til góða á HK.
„Þetta er hrikalega jöfn deild og við munum gera okkar allra besta til að vinna tvo síðustu leikina. Vonandi dugar það okkur til að komast upp um deild. En það verður barist til síðustu sekúndu í þessari deild. Ég held að það sé nokkuð ábyggilegt,“ sagði Guðni áður en hann ræddi almennt um sumarið og deildina.
Þar talar hann meðal annars um miklar framfarir í deildinni og hrósar liðunum öllum fyrir bætta umgjörð. Hægt er að horfa á allt viðtalið við Guðna í spilaranum hér að ofan.