Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 24. september 2018 14:04
Ívan Guðjón Baldursson
Grealish skrifar undir fimm ára samning (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn eftirsótti Jack Grealish er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Aston Villa.

Grealish er 22 ára gamall og hefur verið orðaður við brottför frá Villa Park undanfarin ár.

Tottenham virtist vera að krækja í hann í sumar en nýir eigendur Villa höfnuðu 25 milljón punda tilboði.

Grealish féll með Villa fyrir tveimur árum og hefur félaginu ekki tekist að komast aftur upp í úrvalsdeildina.

Villa hefur ekki byrjað tímabilið sérlega vel og er um miðja deild, með þrettán stig úr níu leikjum.
Athugasemdir
banner
banner