Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 24. september 2020 15:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið KA og HK: Mikkel í banni og fimm breytingar hjá HK
Ásgeir Sigurgeirs er á sínum stað í liði KA.
Ásgeir Sigurgeirs er á sínum stað í liði KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA mætir HK í leik sem hefst núna klukkan 16:00. Leikurinn er liður í 10. umferð Pepsi Max-deildar karla þó KA hafi leikið fjórtán leiki og HK fimmtán.

Þetta er fyrri viðureign liðanna á tímabilinu, leiknum var frestað vegna bylgju Covid-smita. HK er í 7. sæti með átján stig og KA er í 10. sæti með fimmtán stig.

KA gerði 1-1 jafntefli gegn Fjölni í síðustu umferð. Arnar Grétarsson. þjálfari KA, gerir tvær breytingar á liði sínu frá þeim leik. Ívar Örn Árnason og Sveinn Margeir Hauksson koma inn í liðið fyrir þá Mikkel Qvist sem fékk rauða spjaldið gegn Fjölni og Bjarna Aðalsteinsson sem er á bekknum. Ásgeir Sigurgeirsson skoraði markið gegn Fjölni og er hann í byrjunarliði KA. Mikkel er í tveggja leikja banni.

HK gerði 1-1 jafntefli gegn Víkingi R. í sínum síðasta leik. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, gerir fimm breytingar á sínu liði frá þeim leik. Valgeir Valgeirsson, Ívar Örn Jónsson, Atli Arnarson, Bjarni Gunnarsson og Leifur Andri Leifsson eru ekki í byrjunarliðinu í dag. Inn koma Ásgeir Börkur, Gummi Júl, Ásgeir Marteinsson, Hörður Árna og Ólafur Örn. Fjórir af byrjunarliðsmönnunum úr síðasta leik eru á bekknum, allir nema Ívar Örn Jónsson - Ívar fékk tvö gul spjöld gegn Víkingi og er því í leikbanni.

Bein Textalýsing: 16:00 KA - HK

Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
7. Almarr Ormarsson (f)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
30. Sveinn Margeir Hauksson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
14. Hörður Árnason
17. Jón Arnar Barðdal
22. Þórður Þorsteinn Þórðarson
28. Martin Rauschenberg

BEINAR TEXTALÝSINGAR:
16:00 KA - HK
16:15 FH - Valur
16:15 Fjölnir - ÍA
16:15 KR - Grótta
19:15 Fylkir - Víkingur
19:15 Breiðablik - Stjarnan
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner