Föstudaginn 1. október munu Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands og Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu í tengslum við úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna, sem fram fer sama dag. En það eru Breiðablik og Þróttur R. sem leika til úrslita.
Ráðstefnan hefst kl. 16.00 og dagskrá má finna í viðhengi.
Hingað til lands kemur Stefan Alvén, en hann er íþróttastjóri Elitfotboll Dam (EFD) í Svíþjóð. EFD virkar sem eins konar gæða eftirlitskerfi í kringum knattspyrnu kvenna í Svíþjóð og starf Stefan hjá EFD snýst um að meta og hafa eftirlit með starfsemi félaga, m.a. þá þætti er snúa að þjálfun og þróun efnilegra stúlkna og aðstoða félögin í að bæta umhverfið í kringum knattspyrnu kvenna þar í landi.
Erindi Stefan Alvén höfðar ekki síst til þeirra aðila sem koma að skipulagi og stjórnun kvennaboltans í félögum og hvetjum við starfsmenn og fulltrúa í barna- og unglingaráðum félaga eindregið til að skrá sig. Ásamt auðvitað þjálfurum.
Þá verður einnig fjallað ítarlega um þau lið sem leika til úrslita, Breiðablik og Þróttur R.
Opið er fyrir skráningu og hægt er að skrá sig hér
Frítt er á ráðstefnuna fyrir félagsmenn í KÞÍ. 3.000 kr. kostar fyrir aðra ráðstefnugesti.
Þjálfarar sem sækja ráðstefnuna fá 4 tíma í endurmenntun á sinni UEFA þjálfaragráðu.
Auglýsingin:
Bikarúrslitaráðstefna KÞÍ og KSÍ - 2021
Breiðablik og Þróttur R. mætast í úrslitum Mjólkurbikars kvenna föstudaginn 1. október kl. 19.15.
Af því tilefni verður Bikarúrslitaráðstefna KÞÍ og KSÍ haldin sama dag. Ráðstefnan verður haldin í sal ÍSÍ að Engjavegi 6 í
Laugardal.
Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir:
1. október 2021
• kl. 16.00 Setning
• kl. 16.10 Stefan Alvén, íþróttastjóri EFD (Elitfotboll Dam) – Afreksumhverfi í knattspyrnu kvenna í Svíþjóð
Stefan Alvén starfar sem íþróttastjóri Elitfotboll Dam í Svíþjóð. Starf hans snýst um að meta og hafa
eftirlit með starfsemi félag, m.a. á þeim þáttum er snúa að þjálfun og þróun efnilegra stúlkna og
aðstoðar félögin í að bæta umhverfið í kringum knattspyrnu kvenna.
• kl. 17.50 Ítarleg greining á liðunum sem leika til úrslita
• kl. 18.30 Ráðstefnuslit
• Ráðstefnustjóri: Sigurður Þórir Þorsteinsson
• Frítt er á ráðstefnuna fyrir félagsmenn í Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands.
3.000 kr. kostar fyrir ráðstefnugesti sem ekki eru félagsmenn í KÞÍ.
• Skráning fer fram hér.
• Þjálfarar sem sækja ráðstefnuna fá 4 tíma í endurmenntun á sinni UEFA þjálfaragráðu.
Athugasemdir