fös 24.sep 2021 10:48 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Lið ársins og bestu leikmenn í 2.deild kvenna 2021
Fótbolti.net hefur fylgst með 2. deildinni í sumar. Við fengum þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja úrvalslið keppnistímabilsins. Hér að neðan má líta það augum en einnig voru þjálfari ársins, besti og efnilegasti leikmaður ársins valin.
Katla Tryggvadóttir er í liðinu. Hún var í 2. sæti í kjörinu á efnilegasta leikmanni deildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aldís Guðlaugsdóttir – KH
Marta Saez Sivill – Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Thelma Steindórsdóttir - KH
Halla Helgadóttir - Fram
Margrét Regína Grétarsdóttir - Fram
Hannah Cade – Fram
Bayleigh Ann Chaviers – Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Katla Tryggvadóttir - KH
Freyja Karín Þorvarðardóttir – Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Unnur Elva Traustadóttir – ÍR
Alexandra Taberner Thomas – Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Varamenn:
Sara Montoro – Fjölnir
Samara De Freitas Martins – Völsungur
Mar Sanchez Celdran - Völsungur
Sarah Catherine Elicky - Völsungur
Hlín Heiðarsdóttir - Fjölnir
Jovana Milinkovic - Sindri
Gianna Mattea Milaro - Fram
Aðrar sem fengu atkvæði í úrvalsliðið:
Markverðir: Margrét Ingþórsdóttir (Fjölnir), Steinunn Lilja Jóhannesdóttir (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Anne Elizabeth Bailey (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir),Enija Anna Vaivode (Einherji), Þóra Rún Óladóttir (Fram).
Varnarmenn: Anja Ísis Brown (ÍR), Heiðrún Hafdal (Hamrarnir), Dagný Rún Pétursdóttir (Hamar), Hildur Björk Búadóttir (KH), Eva María Smáradóttir (Fjölnir), Brianna Curtis (Einherji), Embla Karen Bergmann Jónsdóttir (KH), Árdís Rún Þráinsdóttir (Völsungur), Ólöf Rún Rúnarsdóttir (Völsungur), Sigrún Marta Jónsdóttir (Völsungur), Jóna Björg Jónsdóttir (Völsungur), Kolbrá Una Kristinsdóttir (KH), Erika Rún Heiðarsdóttir (Fram), Elísabet Arna Gunnlaugsdóttir (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Rósey Björgvinsdóttir (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Elvý Rut Búadóttir (Fjölnir), Ísabella Sara Halldórsdóttir (Fjölnir), Bjarndís Diljá Birgisdóttir (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Anna Lára Grétarsdóttir (Sindri), Lilja Dögg Erlingsdóttir (Hamar).
Miðjumenn: Michaela Ann Loebel (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir (Fjölnir), Samira Suleman (Sindri), Halldóra Birta Sigfúsdóttir (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Kayla Hamric (Fjölnir), Federica Silvera Arias (Sindri).
Sóknarmenn: Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir (Sindri), Eva Stefánsdóttir (KH), Krista Eik Harðardóttir (Völsungur).
Þjálfari ársins: Björgvin Karl Gunnarsson - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Kalli hefur gert virkilega vel með lið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis síðan hann tók við því haustið 2018. Liðið var frábært í sumar. Sigraði riðlakeppni 2. deildar og vann svo úrslitakeppnina. Óumdeilanlega besta lið 2. deildar í sumar sem Kalli hefur sett saman.
Önnur sem fengu atkvæði sem þjálfari ársins: Theódór Sveinjónsson og Júlíus Ármann Júlíusson (Fjölnir), Brianna Curtis (Einherji), Arnar Páll Garðarsson (KH), Christopher Harrington (Fram).
Leikmaður ársins: Freyja Karín Þorvarðardóttir - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Hin 17 ára Freyja Karín var stórkostleg í sumar. Freyja er líkamlega sterk, snögg og með mikið markanef enda búin að skora 22 mörk í 15 leikjum í 2. deild. Hún vakti mikla athygli síðasta sumar þegar hún skoraði 13 mörk í 2. deild og var þá valin í lið ársins í deildinni, 16 ára gömul. Síðan þá hefur hún hefur tekið gríðarlega stór framfaraskref og fékk yfirburða kosningu sem besti leikmaður deildarinnar.
Aðrar sem fengu atkvæði sem leikmaður ársins: Halla Helgadóttir (Fram), Bayleigh Ann Chaviers (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Hannah Cade (Fram), Sara Montoro (Fjölnir), Alexandra Taberner Thomas (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir), Hlín Heiðarsdóttir (Fjölnir), Unnur Elva Traustadóttir (ÍR).
Efnilegust: Freyja Karín Þorvarðardóttir - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Freyja Karín er bæði best og efnilegust í 2. deild í ár. Frábært tímabil hjá sóknarmanninum unga sem er fædd 2004 og fékk kallið í U19 landslið Íslands fyrir sína frammistöðu. Freyja var í 2. sæti í kosningu um efnilegasta leikmann síðasta tímabils og bætir nú aldeilis um betur.
Aðrar sem fengu atkvæði sem efnilegust: Hildur Björk Búadóttir (KH), Sara Montoro (Fjölnir), Katla Tryggvadóttir (KH)
Ýmsir molar:
- Deildarmeistarar Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir eiga fjóra fulltrúa í liði ársins. KH og Fram eiga þrjá fulltrúa hvort og ÍR einn.
- Á varamannabekknum eru þrír leikmenn Völsungs, tvær frá Fjölni, ein frá Fram og ein frá Sindra.
- Það vekur athygli að enginn leikmaður Fjölnis, sem fylgir Fjarðabyggð/Hetti/Leikni upp í Lengjudeildina á leikmann í liði ársins.
- Freyja Karín Þorvarðardóttir er fyrst til að vera valin bæði best og efnilegust í 2.deild
- Freyja Karín var í liði ársins í fyrra. Unnur Elva Traustadóttir er í liðinu í ár og fékk atkvæði í fyrra.
- Alexandra Taberner Thomas er í liðinu sem fulltrúi Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis í ár. Árið 2019 komst hún í úrvalsliðið sem leikmaður Sindra.
- 45 leikmenn fengu atkvæði í kjörinu.
- Í fyrra fengu 48 leikmenn atkvæði.
- 10 af 13 liðum deildarinnar eiga leikmenn sem fengu tilnefningar
- Katla Tryggvadóttir í KH var í 2. sæti í kjöri á efnilegasta leikmanni ársins
- Það eru fjórir erlendir í úrvalsliðinu í ár. Jafnmargar og í fyrra.
- Þjálfarar Fjölnis, þeir Júlíus Ármann Júlíusson og Theódór Sveinjónsson, voru í 2. sæti í kosningu um þjálfara ársins.
- Sara Montoro fékk flest atkvæði varamanna.