Fotbolti.net
24.12.23 - 12:30
Aksentije Milisic

Davíð Smári framlengir við Vestra (Staðfest)

Davíð Smári Lamude.

Davíð Smári Lamude.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra á Ísafirði, hefur framlengt samning sinn við félagið út árið 2025. Þetta staðfesti Vestri í dag.

Davíð Smári tók við liðinu fyrr á þessu ári og kom því upp í Bestu deildina í fyrstu tilraun. Liðið lagði Aftureldingu að velli í úrslitaleik á Laugardalsvelli um sæti í efstu deild karla.

Á undan því hafði Davíð þjálfað Kórdrengi í fimm ár og farið með liðið upp um þrjár deildir.

Vestri byrjar tímabilið á því að mæta Fram á útivelli þann sjöunda apríl en fyrsti heimaleikur liðsins verður gegn KA þann 20. apríl.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.