Man Utd tilkynnir um kaup Ratcliffe í félaginu (Staðfest)

Sir Jim Ratcliffe.

Mynd: Getty Images

Sir Jim Ratcliffe.

Mynd: Getty Images
Manchester United tilkynnti rétt í þessu kaup Sir Jim Ratcliffe og INEOS í félaginu en það á nú 25% hlut í Manchester United.
Sir Jim Ratcliffe er forseti og framkvæmdastjóri INEOS og ætlar hann að taka til hjá félaginu. Hann vill sjá um leikmannamál félagsins og ætlar að ráða inn rétta fólkið til að draga félagið áfram á næsta gæðastig.
Þá segir félagið að Ratcliffe og INEOS muni leggja fram 300 milljónir dollara til félagsins og að INEOS muni sjá um að stýra fótboltamálum félagsins.
„Við erum öll með sama metnað, við viljum sjá Manchester United aftur þar sem við eigum heima, í efsta sæti enska, Evrópska og Heimsfótboltans," sagði Ratcliffe.
„Sem heimamaður og stuðningsmaður félagsins alla ævi, er ég mjög ánægður með að við höfum náð samkomulagi við stjórn Manchester United sem felur okkur stjórnunarábyrgð á knattspyrnurekstri félagsins."
„Við erum staðráðin í að vinna með öllum í klúbbnum – stjórninni, starfsfólki, leikmönnum og aðdáendum – til að hjálpa klúbbnum áfram," sagði hann á meðal annars.






