Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. janúar 2020 19:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjarnafæðismótið: KA skoraði fjögur gegn D/R - Steinþór með 2
Tvö mörk frá Steinþóri
Tvö mörk frá Steinþóri
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA 4 - 0 Dalvík/Reynir

KA sigraði í dag sinn fimmta leik í Kjarnafæðismótinu. Liðið er með fullt hús stiga og mætir Þór í lokaleik sínum næsta laugardag.

Steinþór Freyr Þorsteinsson skoraði fyrsta og þriðja mark KA í dag og komu þau bæði í fyrri hálfleik. Brynjar Ingi Bjarnason skoraði 2. markið og kom það á 27. mínútu.

4. markið kom svo á 57. mínútu þegar Ottó Björn Óðinsson skoraði með gullfallegu skoti fyrir utan teig upp í fjærhornið. Dalvík/Reynir er í 3. sæti riðilsins með átta stig eftir fimm leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner