Ágúst Hlyns til AB í Danmörku (Staðfest)

Það er enginn vafi á því að hann er leikmaður sem getur hjálpað okkur að vinna

Mynd: AB

Ég mun gera allt til þess að vinna leiki

Mynd: AB

Það er mikil ákefð í hans leik og hann býr yfir góðum hæfileikum með boltann

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Danska félagið AB tilkynnti í dag að það væri búið að festa kaup á sóknarsinnaða miðjumanninum Ágústi Hlynssyni. Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027.
„Ágúst kemur til okkar á mikilvægum tíma á hans ferli og við erum mjög spenntir að hann hafi valið að vinna með okkur og að hann þrói sinn leik áfram hér hjá AB fjölskyldunni," segir David Roufpanah sem er þjálfari liðsins.

„Það er mikil ákefð í hans leik og hann býr yfir góðum hæfileikum með boltann. Hann setur alltaf liðið í fyrsta sæti. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Hlynsson víðtæka alþjóðlega reynslu frá ýmsum unglingalandsliðum Íslands og Evrópuleikjum. Þegar ég sá hann fyrst hér gat ég séð hungrið og metnaðinn í augum hans. Það er enginn vafi á því að hann er leikmaður sem getur hjálpað okkur að vinna."
Ágúst hafði þetta að segja við undirskrift:
„Ég er mjög spenntur að fara í grænu og hvítu röndóttu treyjuna. Ég mun gera allt til þess að vinna leiki."
„Ég mun gefa 110% fyrir liðið og félagið til að hjálpa við að ná markmiðunum. Ég er mjög spenntur að hitta liðsfélagana. Ég fékk mjög góða mynd af félaginu þegar ég kom fyrst og ég held að við höfum allar forsendur til að taka næsta skref."
Ágúst er 23 ára miðju/kantmaður sem byrjaði fjórtán leiki í Bestu deildinni í fyrra, tvo leiki í bikarnum og einn í Evrópu. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp tvö samkvæmt Transfermarkt.
Ágúst lék á sínum tíma ellefu leiki fyrir U21 landsliðið og alls 35 leiki fyrir yngri landsliðin.
Hann þekkir vel til í Kaupmannahöfn en hann var leikmaður Bröndby á árunum 2017-2019. Hann var svo á mála hjá Horsens á árunum 2020-2023 en fór í tvígang þaðan á láni til Íslands; fyrst til FH og svo til Vals.
Sigursælt félag
AB er í dönsku C-deildinni og er sem stendur í 6. sæti deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir fram að tvískiptingu. Ætli liðið sér upp í B-deildina þarf liðið að vinna upp tíu stiga forskot sem Roskilde hefur á liðið á þessum tímapunkti en alls eru sextán umferðir eftir.
AB hefur orðið danskur meistari alls níu sinnum, síðast árið 1967. Það gerir félagið að því fjórða sigursælasta í sögu danska boltans. AB hefur einu sinni orðið bikarmeistari og var það árið 1999. Árið 2012 var félaginu bjargað frá gjaldþroti.