Fotbolti.net
25.01.24 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alfredo heim í Selfoss (Staðfest)

Alfredo heim í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

Selfoss tilkynnti í dag um komu Alfredo Ivan til félagsins. Alfredo skrifar undir tveggja ára samning á Selfossi.

Alfredo spilaði síðast með yngri flokkum Selfoss sumarið 2016 en síðan þá hefur hann leikið með Fylki, Elliða, Stokkseyri, Árborg og nú síðast Árbæ. Hanns koraði þrjú mörk í nítján leikjum í 3. deildinni í sumar.

Alfredo fæddist árið 1999 í Paragvæ en kom til Íslands árið 2012, nánar tiltekið á Selfoss þar sem hann hóf að æfa knattspyrnu með yngri flokkum félagsins
Alfredo hefur æft með meistaraflokk Selfoss í allan vetur og staðið sig með prýði. Hann er að upplagi kantmaður en getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum.

Alfredo er annar leikmaðurinn sem Selfoss tilkynnir á síðustu dögum. Robert Blakala var kynntur sem nýr markvörður félagsins í upphafi vikunnar.

Í gær var svo tilkynnt að Arnór Elí Kjartansson hefði skrifað undir eins árs samning við félagið. Arnór er fæddur árið 2005 og hefur verið hluti af æfinga- og keppnishóp meistaraflokks síðustu tvö tímabil.

„Arnór gekkst undir aðgerð á olnboga nú á dögunum og gengur endurhæfingin vel. Hann mun mynda markvarðarpar meistaraflokks Selfoss í sumar ásamt Robert Blakala sem fenginn var til liðsins nú á dögunum," segir í tilkynningu Selfoss.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.