Fotbolti.net
25.01.24 - 17:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Snær til Njarðvíkur (Staðfest)

Aron Snær til Njarðvíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Njarðvík tilkynnti rétt í þessu um komu nýs leikmanns til félagsins. Markvörðurinn Aron Snær Friðriksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Áhugi var á Aroni í Noregi og þá var hann einnig orðaður við Þrótt R. en hann ákvað að semja við Njarðvík.

Aron mun verja mark Njarðvíkur í sumar og tekur við stöðu Robert Blakala sem varði mark liðsins síðustu þrjú tímabil en samdi við Selfoss á dögunum.
Njarðvík endaði í 10. sæti í Lengjudeildinni á síðasta tímabili sem nýliði í deildinni.

Úr tilkynningu Njarðvíkur
Aron, sem er 26 ára gamall, gengur til liðs við okkur frá KR þar sem hann hefur spilað síðustu tvær leiktíðar. Aron er upprunalega úr Grindavík en hefur einnig verið á mála hjá Breiðablik, Fylki, Vestra og Tindastól auk KR.

Alls á Aron 150 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ, en 81 þeirra hefur komið í Bestu deildinni, og 11 þeirra komu í Bestu deildinni á síðustu leiktíð með KR.

Þar að auki á Aron 7 yngri landsleiki fyrir Íslandshönd, en 6 þeirra komu í U21 og einn þeirra fyrir U19.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkurliðsins, sagði eftirfarandi um komu Arons:

„Við Njarðvíkingar erum gríðarlega sáttir með að fá Aron til liðs við okkur. Frá því að ég endursamdi við Njarðvík í vor þá hafa allir hjá klúbbnum verið mjög samstilltir á það markmið að taka næstu skref með Njarðvíkurliðið og að fá leikmann sem á 80 leiki í Bestu deildinni er klárlega skref í rétta átt."

„Aron hefur að okkar mati sýnt það með KR að hann er klárlega markmaður á Bestudeildar standard og fær hjá okkur frábært svið til að sýna öllum hversu megnugur hann er.“

Aron Snær til Njarðvíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.