Bandarískur landsliðsmaður semur við Como (Staðfest)

Mynd: Como

Mynd: Como
Bandaríski landsliðsmaðurinn Nicholas Gioacchini hefur samið við ítalska B-deildarliðið Como en hann kemur til félagsins frá St. Louis í Bandaríkjunum.
Gioacchini er 23 ára sóknarmaður sem er uppalinn í Bandaríkjunum en á rætur sínar að rekja til Ítalíu í gegnum föður sinn. Gioacchini bjó nokkur ár á Ítalíu í Parma ásamt fjölskyldu sinni áður en hann flutti ungur að árum til Frakklands.
Draumur hans var alltaf að spila á Ítalíu og nú er sá draumur að rætast en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Como í gær.
Como, sem er að hluta til í eigu fyrrum fótboltamannsins Cesc Fabregas, ætlar sér upp í Seríu A fyrir næsta tímabil og er Gioacchini ákveðin yfirlýsing hvað það varðar.
Gioacchini hefur skorað þrjú mörk í átta landsleikjum með Bandaríkjunum.

Como 1907 is thrilled to announce the signing of Nicholas ‘Niko’ Gioacchini, a dynamic centre forward with dual American and Italian citizenship. The 23-year-old who spent his formative years growing up in Parma has signed a contract until the end of the 26/27 season.
— Como1907 (@Como_1907) January 24, 2024
Read the… pic.twitter.com/RpjR9IzSMk