Claudio Echeverri í Man City (Staðfest)

Claudio Echeverri.

Mynd: Manchester City

Claudio Echeverri.

Mynd: Manchester City
Englands- og Evrópumeistarar Manchester City hafa staðfest að Claudio Echeverri sé genginn í raðir félagsins.
Hann skrifar undir samning til 2028 við City en hann verður áfram hjá River Plate í Argentínu til loka þessa árs.

Echeverri hefur verið algjör lykilmaður í U17 landsliði Argentínu þar sem hann á 13 mörk og fimm stoðsendingar í 22 leikjum en hann hefur verið að stíga inn í meistaraflokksboltann með River Plate.
Önnur stór félög í Evrópu höfðu einnig áhuga á þessum unga leikmanni en hann er einungis nýorðinn 18 ára gamall.
City borgar um 12,5 milljónir punda fyrir Echeverri en kaupverðið gæti hækkað aðeins ef hann stendur sig vel.
Það verður spennandi að sjá þennan sóknarþenkjandi miðjumann í enska boltanum þegar að því kemur.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images