Gabriel Moscardo til PSG (Staðfest)

Mynd: PSG

Mynd: PSG
Brasilíski táningurinn Gabriel Moscardo skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við franska félagið Paris Saint-Germain.
Moscardo, sem er 18 ára gamall, kemur til félagsins frá Corinthians í Brasilíu, en PSG greiðir um 22 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Leikmaðurinn verður áfram hjá Corinthians fram að sumri á láni frá PSG.
Moscardo spilar sem djúpur miðjumaður og hefur komið við sögu í 37 leikjum með brasilíska liðinu á þessu tímabili.
Mörg félög í Evrópu höfðu augu á honum en PSG var með hraðar hendur og hefur nú staðfest kaupin.

Le Paris Saint-Germain est heureux d’annoncer la signature de Gabriel Moscardo.
— Paris Saint-Germain (@PSG_inside) January 25, 2024
Le joueur brésilien de 18 ans s’est engagé avec le club de la capitale jusqu’en 2028 et sera prêté au SC Corinthians jusqu’à la fin de la saison.
?????? #WelcomeMoscardo