Gekk á Klopp í viðtali - „Ég get ekki tekið þátt í þessari umræðu“

Jürgen Klopp

Mynd: EPA

Jürgen Klopp

Mynd: EPA
Fréttamaður beIN Sports gekk á Jürgen Klopp, stjóra Liverpool, í viðtali eftir leik liðsins við Fulham í gær og spurði hann nánar út í Mohamed Salah, en hann efaðist hollustu Salah.
Salah er mættur aftur til Liverpool í meðhöndlun vegna meiðsla sem hann varð fyrir í Afríkukeppninni.
Einhverjir stuðningsmenn egypska landsliðsins hafa efast hollustu hans eftir að það var tekin ákvörðun um að hann myndi snúa aftur til Bretlandseyja. Fréttamaður beIN gekk því á Klopp og sagði það hafi jú verið hann sem tilkynnti þetta fyrst.
Klopp þurfti að telja upp á tíu áður en hann svaraði spurningu fréttamannsins um Salah.
„Ég get ekki tekið þátt í þessari umræðu. Egyptaland og Liverpool vilja bæði sama hlutinn og það er að Mo Salah verði klár sem allra fyrst. Það hægir bara á öllu ef hann verður áfram í Afríku og fær ekki rétta meðhöndlun. Við fáum hann hingað, ekki til að taka hann frá Egyptum, bara til að bjóða honum bestu meðferðina. Það er búið samþykkja allt. Salah fer í úrslitaleikinn ef Egyptar komast þangað og ef hann verður klár,“ sagði Klopp.