Fotbolti.net
25.01.24 - 18:38
Brynjar Ingi Erluson

Íris Dögg semur við Val (Staðfest)

Íris Dögg er mætt í Val

Íris Dögg er mætt í Val

Canon

Mynd: Valur

Hertz
Markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur samið við Val út keppnistímabilið, en hún kemur til félagsins frá Þrótti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Val.
Íris, sem er 34 ára gömul, er með gríðarlega reynslu úr efstu deild en hún á alls 145 leiki með Þrótti, Breiðabliki, KR, Fylki og FH.

Samningur hennar við Þrótt rann út eftir síðasta tímabil og hefur hún nú tekið skrefið upp á við og samið við Val út keppnistímabilið.

Af hverju Valur?

„Já það má segja að ég hef verið alveg ófeimin við að sækja mér þá reynslu sem ég þarf til að verða betri markmaður. Valur er félag með ótrúlega sögu í kvennaboltanum og ég skal alveg viðurkenna að ég sá mig aldrei þar en allt gerist að ástæðu og ég á mjög erfitt með að neita krefjandi áskorunum,“ sagði Íris við undirskrift.

Hún segist horfa á sitt hlutverk fyrst og fremst þannig að hún sé hluti af þeirri „mögnuðu uppbyggingu sem er í kringum Fanney og ef ég næ að hafa meira hlutverk en það innan hópsins þá er það bara bónus.“

Fanney Inga Birkisdóttir átti magnaða innkomu inn í lið Vals á síðasta tímabili og vann sér inn sæti í A-landsliðinu,

Aðspurð um persónuleg markmið segir Íris „auðvitað hefur maður alltaf einhver markmið og það er eitt stórt sem ég á eftir. Það er Evrópuleikur. Að fá það tækifæri að geta spilað svoleiðis leiki yrði draumur.“

Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var hæst ánægður með komu Írisar.

„Íris hefur fyrir löngu sýnt það að hún er frábær markvörður og hefur gríðarlega reynslu með hátt í 300 leiki í meistaraflokki. Við erum afar ánægð með að fá hana til okkar út þetta tímabil og erum þess fullviss að hún geti miðlað sinni reynslu inn í hópinn til yngri leikmanna,“ sagði Pétur.
Íris Dögg semur við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.