Lára Kristín til Fortuna Sittard (Staðfest)

Mynd: Fortuna Sittard

Mynd: Fortuna Sittard

Íslenska landsliðskonan Lára Kristín Pedersen er gengin í raðir hollenska félagsins Fortuna Sittard frá Val.
Lára Kristín er 29 ára gömul og spilar stöðu miðjumanns, en hún hefur spilað síðustu þrjú tímabil með Val.
Eftir tímabilið varð hún samningslaus og ákvað að leita á önnur mið.
Áður spilaði Lára með Aftureldingu, Stjörnunni, KR, Þór/KA og Napoli á Ítalíu, en hún er nú mætt til Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni og gildir samningur hennar út leiktíðina.
„Það er mikill heiður að fá tækifærið til að spila í hollensku deildinni og er ég hæst ánægð með það. Mér hefur liðið eins og heima hjá mér frá því ég kom hingað. Gæðastaðallinn er hár en það er nákvæmlega í takt við metnað minn. Ég hlakka til að berjast fyrir árangri og skapa saman eftirminnileg augnablik,“ sagði Lára á heimasíðu félagsins.
Hún mun klæðast treyju númer 19 og verður þriðji Íslendingurinn á mála hjá félaginu á eftir Hildi Antonsdóttur og Maríu Catharinu Ólafsdóttur Gros.

Welcome to Sittard ???????? pic.twitter.com/miYirPEmbh
— Fortuna Vrouwen (@FortunaVrouwen) January 25, 2024