Fotbolti.net
25.01.24 - 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd getur ekki einu sinni fengið mann á láni

Man Utd getur ekki einu sinni fengið mann á láni
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur verið orðað við framherja í janúarglugganum, ýmist á láni eða þá eldri leikmenn sem gætu komið ódýrt.

Það virðist þó allt stefna í að enginn leikmaður gangi í raðir félagsins í glugganum, ekki einu sinni lánsmaður.
The Athletic fjallar um það í dag að United geti hreinlega ekki fengið inn leikmann vegna fjármálastöðu félagsins. Félagið þarf að passa sig út af PSR reglum (Profit and sustainability rules).

Enginn framherji sé að koma inn þrátt fyrir meiðsli Anthony Martial sem þarf að fara í aðgera á nára. Martial er á kjöraldri, 28 ára gamall, en hefur mikið glímt við meiðsli og hefur ekki spilað allar mínúturnar í leik með United síðan í september 2021.

United hefur gengið afleitlega að skora mörk á tímabilinu og var vonast til að félagið gæti styrkt framlínuna í lok gluggans eftir að Sir Jim Ratcliffe og INEOS hópurinn kom inn í félagið, en ekkert verður úr því.

Brian Brobbey hjá Ajax, Ivan Toney hjá Brentford, Eric Maxim Choupo-Moting hjá Bayern, Karim Benzema hjá Al-Ittihad og Serhou Guirassy hjá Stuttgart eru á meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við United að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.