Fotbolti.net
25.01.24 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson

Segir Arteta hafa gert stór mistök í sumar- „Hefur kostað Arsenal titilinn“

Kai Havertz

Kai Havertz

Canon

Mynd: Getty Images

Gabriel Agbonlahor, sparkspekingur á talkSPORT, segir Mikel Arteta hafa gert stór mistök á leikmannamarkaðnum í sumar og það sé ástæðan fyrir að liðið muni ekki vinna deildina í ár.
Arteta keypti Kai Havertz frá Chelsea fyrir 65 milljónir punda, en hann hefur ekki alveg staðist þær væntingar sem gerðar voru til hans.

Havertz hefur aðeins skorað fimm mörk í 30 leikjum á tímabilinu og segir Agbonlahor það hafa verið stór mistök að hafa tekið hann í stað Ivan Toney hjá Brentford.

„Ég held að það stærsta sem stuðningsmenn Arsenal eru ósáttir við og það sem Arteta mun sjá eftir er að hafa eytt stórum hluta fjármagnsins í Havertz. Hann var ekki svarið og félagið hefði frekar átt 65 milljónir punda í að kaupa framherja eins og Toney. Þetta mun kosta liðið,“ sagði Agbonlahor.

„ Þeir fengu Vieira og eru með Smith Rowe, sem eru líklega báðir betri en Havertz í sömu stöðu. Fyrir mér hefur því Arteta kostað Arsenal titilinn með því að eyða peningum á svona heimskulegan hátt,“ sagði hann í lokin.

Arsenal er að vísu í ágætis málum í deildinni. Liðið situr í 3. sæti, fimm stigum frá toppliði Liverpool, en það verður að bíða og sjá hvort þetta muni 'kosta' Arsenal titilinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.