Þróttur fær tvo á láni frá Víkingi (Staðfest)

Ísak Daði og Sigurður Steinar fóru saman á reynslu til Venezia fyrri hluta árs 2022.

Mynd: Víkingur R.

Þróttur hefur fengið tvo leikmenn á láni frá Víkingi. Þeir Ísak Daði Ívarsson og Sigurður Steinar Björnsson hafa fengið tímabundin félagaskipti frá Víkingi í Þrótt.
Sigurður Steinar lék með Gróttu í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Hann er fæddur árið 2004 og á að baki fjóra U19 landsleiki og komu þeir allir árið 2022. Sigurður framlengdi á dögunum samning sinn við Víking og er nú samningsbundinn út 2025.

Ísak Daði er sömuleiðis fæddur árið 2004 og var hann á láni hjá Venezia frá miðju sumri 2022 til síðasta sumars. Eftir heimkomu fór hann svo á lán og lék með Keflavík í Bestu deildinni.
Ísak lék tíu leiki með Keflavík og skoraði eitt mark. Hann á að baki tvo leiki með U19 landsliðinu og komu þeir árið 2022. Ísak er samningsbundinn Víkingi út árið 2025.
Þróttarar enduðu í 8. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra. Eftir síðasta tímabil urðu þjálfaraskipti. Ian Jeffs tók við Haukum og Sigurvin Ólafsson tók við hans starfi í Laugardalnum.
Komnir
Adrían Baarregaard Valencia frá KFG
Samúel Már Kristinsson frá Kríu
Viktor Andri Hafþórsson frá Keflavík
Ísak Daði Ívarsson á láni frá Víkingi
Sigurður Steinar Björnsson á láni frá Víkingi
Farnir
Hinrik Harðarson í ÍA
Kostyantyn Pikul
Steven Lennon (var á láni frá FH)