Fotbolti.net
25.02.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Myndband: Stöðvaði sókn með því að nota varaboltann

Myndband: Stöðvaði sókn með því að nota varaboltann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Áhugavert atvik átti sér stað í leik Gjorce Petrov og Akademija Pandev í Makedóníu um helgina en The Guardian segir frá.

Atvikið átti sér stað eftir að sóknarmaður var á fleygiferð upp kantinn eftir snöggt innkast.

Varnarmaður var með varabolta í hendinni og ákvað að stöðva för sóknarmannsins með því að henda boltanum í boltann sem var í leik.

Dómari leiksins hugsaði aðeins málið áður en hann lyfti rauða spjaldinu á loft fyrir þessa tilburði.
Sjón er sögu ríkari en atvikið má sjá hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.