Willian, leikmaður Chelsea á Englandi, er farinn til Brasilíu til að hitta fjölskyldu sína en hann fékk grænt ljós frá enska félaginu í gær.
Willian, sem verður samningslaus í sumar, bað um leyfi til að fara til Brasilíu þar sem hann hefur áhyggjur af fjölskyldu sinni og mun hann vera þar í sóttkví.
Fjölmargir leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa fengið leyfi til að fara til síns heima þar sem deildin hefst ekki fyrr en í fyrsta lagi þann 30. apríl.
Það er þó talið mjög ólíklegt að það verði byrjað að spila aftur þá en Willian verður samningslaus í lok júní.
Hann er opinn fyrir því að semja við Chelsea en einnig er áhugi frá Tottenham.
Athugasemdir