Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   mán 25. maí 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Messi fór meiddur af velli - HM í hættu?
Luis Suárez setti þrjú
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Inter Miami 6 - 4 Philadelphia Union
0-1 Milan Iloski ('3)
0-2 Milan Iloski ('10, víti)
1-2 German Berterame ('13)
1-3 Bruno Damiani ('20)
2-3 Luis Suarez ('29)
3-3 German Berterame ('41)
4-3 Luis Suarez ('44)
4-4 Milan Iloski ('45+8)
5-4 Luis Suarez ('81)
6-4 Rodrigo De Paul ('93)

Argentínski fótboltasnillingurinn Lionel Messi var á sínum stað í byrjunarliði Inter Miami sem tók á móti botnliði Philadelphia Union í MLS deildinni seint í gærkvöldi.

Hann lagði upp tvö mörk í ótrúlega fjörugum fyrri hálfleik þar sem staðan var 4-4 í leikhlé. Germán Berterame skoraði bæði mörkin eftir stoðsendingarnar frá Messi en Úrgúgvæinn Luis Suárez setti einnig tvennu.

Staðan hélst jöfn í rúman hálftíma í síðari hálfleik og var Messi skipt af velli á 73. mínútu. Hann hélt um aftanvert lærið á leið sinni útaf og óttast Inter og argentínska þjóðin að hann sé meiddur.

39 ára gamall Suárez fullkomnaði þrennu á 81. mínútu áður en argentínski landsliðsmaðurinn Rodrigo De Paul innsiglaði 6-4 sigur.

Inter mætti Philadelphia í síðasta leik MLS deildartímabilsins fyrir heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku, sem verður sjötta HM sem Messi keppir á ef allt gengur að óskum. Cristiano Ronaldo er einnig í portúgalska landsliðshópnum og getur því keppt á sínu sjötta heimsmeistaramóti.

Messi, sem verður 39 ára í júní, er næstmarkahæsti leikmaður MLS deildarinnar sem stendur með 12 mörk og 7 stoðsendingar eftir 15 umferðir.

Hann mun gangast undir rannsóknir í dag til að meta meiðslin.

   09.05.2026 08:30
Messi: Samband okkar Ronaldo var alltaf gott

Slapp
banner
banner