Landsliðsmarkvörður Skota orðaður við Man Utd

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Angus Gunn er óvænt orðaður við Manchester United hjá enska miðlinum the Sun í dag.
Manchester United er í leit að markverði til að styðja við Senne Lammens á komandi tímabili. Altay Bayindir á að fara annað til að spila og United vill selja Andre Onana sem var lánaður til Tyrklands á liðnu tímabili.

TENGT EFNI
Man Utd skoðar tvo markverði og vill losna við tvo
Gunn er þrítugur og hefur staðið vaktina í marki Skotlands á HM. Hann var leystur undan samningi hjá Nottingham Forest eftir nýliðið tímabil. Gunn kom til Forest frá Norwich síðasta sumar og spilaði einn leik.
Hann var fjórði markvörður Forest á liðnu tímabili á eftir Matz Sels, Stefan Ortega og John Victor.
United hefur einnig verið orðað við Karl Darlow og Sam Johnstone.