Fotbolti.net
25.07.13 - 10:09
Elvar Geir Magnússon

Albert Guðmundsson til Heerenveen (Staðfest)

Albert er hér lengst til vinstri.

Albert er hér lengst til vinstri.

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Heerenveen í Hollandi hefur staðfest á heimasíðu sinni að hinn 16 ára Albert Guðmundsson hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Albert mun fara beint inn í unglingastarf félagsins.

Albert kemur frá KR en faðir hans er Guðmundur Benediktsson.
Langafi Alberts og alnafni hans var fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í fótbolta og þá er afi hans markahrókurinn Ingi Björn Albertsson.

„Albert kemur frá mikilli fótboltafjölskyldu og er einn efnilegasti leikmaður Íslands. Arsenal og Hoffenheim höfðu einnig áhuga á honum en hann kemur til okkar. Það sýnir gæðin sem unglingastarf okkar býður upp á,\" segir Johan Hansma hjá Heerenveen á heimasíðunni.

Albert er fæddur 1997 og hefur leikið fyrir U17 landsliðið. Í herbúðum Heerenveen má finna annan Íslending, Alfreð Finnbogason.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.