25.07.13 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Tal Ben Haim til Standard Liege (Staðfest)

Tal Ben Haim hefur leikið með og gegn mörgum af bestu leikmönnum veraldar.

Mynd: Getty Images

Ísraelski varnarmaðurinn Tal Ben Haim er búinn að skrifa undir samning við belgíska liðið Standard Liege sem mætir KR í undankeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Tal Ben Haim er vel þekktur hér á landi miðað við áhorfendatölur enska boltans en hann hefur komið víða við á Englandi.

Ben Haim var fyrst leikmaður Bolton, svo fór hann til Chelsea, Manchester City, Sunderland á láni, Portsmouth, West Ham á láni og loks QPR sem féll niður í Championship deildina.
Skammtímasamningur hans við QPR rann út í sumar og fer þessi 31 árs gamli miðvörður því frítt til Standard Liege.
Afar ólíklegt er að Ben Haim spili gegn KR í kvöld. Belgíska félagið vann fyrri leik liðanna á Íslandi 3-1.

Heimild: Yahoo